the world is not big enough!!

Ekki er nóttin daglegt brauð!

13.2.2008 05:14:37 / fannson

vika 2

Vika 2

Dagur 1

Mánudagurinn 5. mars. Ég vaknaði klukkan 06:30 heima hjá mér, setti fötinn sem ása var búin að þrífa ofan í tösku og fékk mér svo hollan og góðan morgunmat. Brunaði í bæinn, ég fór til Bergs Konráðs, hnykkjara og rétti aðeins úr mér. Eftir það dreif ég mig upp á Reykjalund þar sem ég fór í leikfimi II klukkan 09:00. Eftir hana tók ég uppúr töskunniog kom mér fyrir aftur á Efri braut 3, þegar það var búið fór ég aftur uppí íþróttahús þar sem ég átti að mæta klukkan 11:00 og fara á hlaupabretti í 20 mín. Klukkan 12:00 var svo hádegismatur, kjúklingapottréttur, hrísgrjón og grænmeti.Ég lagði mig svo eftir mat, frá 13:00-14:00 og þá fór ég í göngu, í síðustu viku fór ég í göngu II en núna gerðist ég djarfur og fór í göngu III og fannst mér það bara fínt og ætla ég að halda áfram í henni en stefni nú á að fara í göngu IV áður en ég útskrifast héðan. Eftir gönguna fór ég í sund og synti 300 metra með sund blöðkum og slappaði svo af í pottinum. Áður en ég fó útí íbúð fékk ég mér appelsínu í matsalnum. frá 16:00 - 18:00 las ég, ég er að lesa bókina skipið eftir Stefán Mána. þá fór ég í matsalinn aftur og fékk mér að borða. Á morgun fer ég í vigtun, kvíður svolítið fyrir þar sem það var barnaafmæli heima um helgina og nóg af kökum, ég gæti trúað að ég hafi fengið mér 1-2 kökum of mikið :S en það kemur í ljós... á meðan ég vikta ekki171kg þá verð ég ánægður :D

 

Dagur 2

Þriðjudagurinn 6. mars. Ég átti svolítið erfitt með að koma mér framúr í morgun en það hafðist þó um 07:45, fór og fékk mér morgunmat og hélt svo af stað í lyftingasalinn klukkan 08:30 og var þar í einn og hálfan tíma. Klukkan 11:00 fór ég í annan tímann minn í stafgöngu, eftir 5 mínútna tíma í því sendi Heimir (íþróttaþjálfari) mig út í skóg, ég er útskrifaður úr stafgöngu kennslu :D og í skóginum gekk ég í um 30 mín. Klukkan 12:00 fór ég í mat, það var boðið upp á ljúffengan steinbít og klukkan 13:00 fór ég í fyrirlestur sem kallast af hverju megrun. Klukkan 14:00 fór ég aftur í tækja salinn og hjólaði undir eftirliti í 20 mín. fór svo í tækin í 40 mín. Klukkan 15:00 var svo annar fyrirlestur með félagsfulltrúa, eða samt... kanski ekki allveg fyrirlestur heldur bara svona hópfundur um sjálfsstyrkingu. svo var endað á að synda 450m.... 450.... af hverju ekki að taka 2 ferðir í viðbót og klára helvítis 500metrana, jæja... geri það á morgun. núna er ég bara að bíða eftir matnum klukkan 18:00. Er að spá í að leggja mig í klukkutíma svo ég verði hress á leiknum á eftir, en ég og JmasterJ ætlum að fara á sportkaffi eða eikkvað álíka. meira um það á morgun bæbæ

Dagur 3

Miðvikudagurinn 7.mars. Ég er ekki frá því að það sé draugagangur hérna í húsin sem ég er í... allavega þá vaknaði ég tvisvar í nótt við það að bókin sem ég er að lesa datt af náttborðinu og niðrá gólf sem er skrítið vegna þess að í fyrra skiptið lét ég hana bara vera á gólfinu :S .... aen hvað sem því líður þá þurfti ég að rífa mig á fætur klukkan 08:00 og drífa mig í morgunmat. Klukkan 09:00 fór ég í leikfimi ef leikfimi skal kalla... nenni ekki að standa í eikkverri teygjuleikfimi... ég vill svitna, brenna... missa kíló. Eftir leikfimina fór ég að skipuleggja hvað ég get gert á dauðum tímum, var að því þangað til klukkan var að ganga 12:00 þá fór ég í mat og það var borðað grænmetis tortilla sem var alltílagi... Klukkan 13:00 fór ég í badminton og rústaði Gyðu og Petru muhahaha þær áttu ekki séns í mig ;) Klukkan 14:00 var fyrirlestur um hreyfingu&þyngd og áttu sumir erfiðara en aðrir að halda sér vakandi og voru farnir að hrjóta!!Svo klukkan 15:00 var farið í allvöru leikfimi eða svokallaðan þolhring og þar fékk marr að svitna takk fyrir!! Klukkan 16:00 var svo annar fyrirlestur sem heitir Afleiðing offitu, ég sá nú engann sem brá dúr á auga en sjálfur átti ég í stökustu vandræðum með að halda augunum opnum. Svo fór ég í sund og synti þar eikkverja 400 metra og fór svo og slappaði af í pottinum... nema hvað að potturinn fyllist af eikkverju elli kellingum, og þær fara eikkað að tala um göt í vör, nefi, tungu og svo tatto ein segist allveg vilja fá sér tatto en mamma hennar kom með eina fyndnustu fullyrðingu sem ég hef heyrt hérna... " maður fær svo mikla verki í tatto-in þegar maður er veikur" ég bara Ómægod og skelli hló (inní mér) en hahaha þá heyrist í dótturinni, "bara ef það er rautt og svart!" þá gat ég nú ekki haldið hlátrinum í mér og önnur kelling þarna spurði mig, " er þetta satt?" "ekki hef ég orðið var við það" svaraði ég. "Þá hefur hann kanski ekkert orðið veikur" sagði sú gamla og fór uppúr! hahaha ertu að grínast þær töluðu sko meira um þetta en þetta stóð uppúr :D En jæja best að fara að sofa... ef ég er heppinn verð kynferðislega misnotaður af þessari draugynju hérna ;)

Áfram Liverpool... bæ bæ Barcelona!!

Dagur 4

Fimmtudagurinn 8.mars. Hum... alltaf er þetta eins vaknaði fyrir 08:00 og var kominn í morgunmat rúmlega 8. Fór í leikfimi klukkan 09:00 og það var annar þolhringur, ég hefði átt að lofsama hann meira í gær, var svo ofboðslega þreyttur að ég var ekki að nenna að taka þátt. En það breyttist þegar tíminn byrjaði og það var voða fjör. Klukkan 11:00 fór ég í stafgöngu, þar sem ég er útskrifaður ú stafgöngu kennslunni fór ég bara einn á arkið útí skóg, ætlaði að rölta þar um 40 mín. en eftir 11 mínútur var ég búinn að rölta útum allan skóginn þannig að ég ákvað að rölta sömu leið og fór á þriðjudaginn í göngu III. þegar ég var kominn aftur uppá reykjalund var klukkan ekki nema 11:33, sem þýðir að ég er mikið fljótari að ganga með stafina heldur en án þeirra. En ég verð líka helmingi þreyttari. Klukkan 12:00 var svo etið svína gúllas eikkað. og klukkan 14:00 fór ég í göngu III en samt aðra leið en ég hafði farið fyrr um daginn. Klukkan 15:00 fór ég uppí Oddshús og fékk mér ávexti og þaðan fór ég í sund og lá í heita pottinum í góðan hálftíma. Eftir það ákvað ég að horfa loksins á "Þetta er ekkert mál" sem ása gaf mér í jólagjöf og ég held að þetta sé ein sorglegasta mynd allra tíma, allavega hágrét ég hérna þegar mamma hanns var að segja frá því þegar hann dó ;( Að lokum vill ég að gamni mínu segja frá því að ég er búinn að vera með skrefamælir í rúma viku og á að skila honum á morgun. Á meðal degi gengur meðalmaður um 6-7000 skref. en núna þegar klukkan er 21:18 þá er ég búinn að ganga í dag, 15.975 skref og á ennþá örruglega eftir að ganga yfir 16.000 því það eru 20 skref inn í stofu úr herberginu, og 20 til baka og 15 skref frá herberginu og inn á bað og 15 til baka aha! :D en þetta er nóg í bili

Íþróttaálfurinn kveður

Dagur 5

Föstudagurin 9.mars. Hey hafið þið heyrt þennan áður.... ég vaknaði klukkan hálf 7!! ;) En dagurinn í dag já, það var morgunmatur eins og venjulega og svo leikfimi klukkan 9, á föstudögum er alltaf létt leikfimi bara leikir og eikkað gaman en í dag þá enduðum við á því að fara í boccia!! og vitiði... ég skammast mín ekki bit fyrir að segja það en ég rocka feitan í boccia! :D hehe. Klukkan 11 fór ég krónuna og þar var mér kennt að lesa á umbúðirnar, hvað ég á að forðast og blablabla svo var matur klukkan 12.klukkan 13 var svo markmiðsettning, ég setti mér nú bara eitt markmið á fundinum en það er það að ég ætla að ganga Esjuna í ágúst, (ég er kominn með æði fyrir göngu ) heyrðu já klukkan 14:00 fór ég í göngu III. Og ég ákvað að í 4. og 5, viku þá ætla ég að fara í göngu IV (toppurinn) því næst var farið í sund og þar synti ég eikkverja 500 metra. En þetta er víst nóg í bili. Ég fór ekkert á vigtina núna þar sem ég á að fara á þriðjudögum og það er bara vest að halda því ;)

 

Ég þakka fyrir stuðningininn sem ég hef fengið bæði frá fólki sem commentar á bloggið og bara fólk sem ég hitti á förnum vegi.Og svo svona til að svara commentunum:

Já júlli ég stefni á kajakinn í simur og ekkert kjaftæði, reyndar var Jakob már búinn að tala við mig þar sem reynisliðinu vantar striker en ég benti honum bara á umboðsmanninn, júlli þú getur átt von á símtali ;)

Systa takktakk :D

Elsa, knús

peace out Strósý

ble tóta takk takk

Rúnar... óútreiknanlegur... hihihi þú kannt að komast að orði, takktakk, ég er kominn með fullt af hugmyndum af hollum og góðum mat sem þú getur eldað á sjónum... lofa að kallarnir elski hann ;)

nonni .... róa sig... ég rústa þér og þarf að bíða eftir þér við endamarkið ;)

uppáhalds frænka mín... takk takkm sjáumst í bústað á morgun

Binni minn, kennslan er lítið mál, talaðu bara við mig þegar þú kemur heim ;) annars reikna ég með því að þú komir heim bara... slim Jim, ég trúi ekki öðru en að þið labbið heilan helling þarna úti, annars drekkuru örruglega svo mikinn bjór að þú kemur örruglega út á jöfnu ;)

Takk fyrir gott fólk, meira kemur að viku liðinni

Myndir
Próf
spánarferð 2007
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 965 dögum
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 965 dögum