Góðan daginn! Sólskin í heiði og fuglarnir
syngja...eða er mig enn að dreyma, júbb rigning og rok ennþá
og enginn fuglasöngur við gluggann minn, meira svona eins og
mávagarg! Mér datt í hug að rita nokkur orð á meðan ég
"horfi" á Arsenal - Chelsea. Þó svo að Arsenal sé að stinga
Liverpool af þá ætla ég að hald með þeim í dag, bara til að
styðja hann Rúnar frænda minn, raunin er líka sú að ég haaata
Chelsea!
Hver gaf Carlos Tevez símanúmerið mitt!!! Ég var búinn að blokka
hann á msn-inu mínu því hann er svo leiðinlegur en svo fæ ég sms
frá honum áðan!!?!? wadda fock?sá sem lýsir sig sekan af þessu
ódæði getur sleppt því að koma í áramótapartýið, I mean it! by the
way þá var hann að þakka mér fyrir leikinn... var ég að spila? nei
marr spyr sig. Hann hefur kannski verið að þakka mér fyrir að halda
sér í draumaliðinu... en mér til varnar þá segji ég eins og Georg
Bjarnfreðarson frændi minn, " þetta er allt saman misskilningur og
byggt á enn meiri misskilningi 
En vá talandi um partý, sí-jitt er ykkur farið að hlakka jafn
mikið til og mér?
Þetta verður geðveikt! Má ég sjá, rétt upp
hendi hverjir ætla að koma!! nanaunau fííínnt! það verður
þéttpakkað dansgólfið, í þessu partýi! (Æji, núna skorar Lampard
pottó!) Annars er ég að spá í að breyta um þema í partýinu, hafa
Liverpool þema! Allir að mæta sem Hyypia og Crouch
hehehe (hann
skaut í innkast hahaha) En ég læt vita ef ég ákveð að breyta
þemanu, þangað til undirbúið þið hatta og gleraugnaþema 
Djöfull er ég búinn að taka á því um helgina... byrjaði á
fimmtudaginn þá fór ég með Davíð og Nonna í kef, varð mökk- ölvaður
eftir man ekki allveg, 4 bjóra, 1 vodka staup og einn jack on a
rock, borgaði svo fyrir leigubíl fyrir mig og davíð, rétt áður en
band brjálaða veðrið byrjaði
Föstudaginn fór ég á jólaglögg með Hauki og Binna í Festi, þetta
var fyrsta jólaglöggið mitt ever! og það var bara helvíti gaman,
reyndar vorum það við sem héldum uppi stemmaranum, Jón ándskoti á
gítarnum og svo við að syngja, Pólverjarnir voru ferskir og einn
haffirðingur líka, hahaha hann var fyndinn, læsti sig inn á
klósetti og læti, svo var farið á yello og það var stappað þar!
ertu í gríninu og aftur var ég allveg á perunni. lét svo Marra bara
ná í mig daginn eftir, takk fyrir það vinur minn 
Laugardagur. Fór í afmæli á mamma mía hjá Sigurpáli og Margréti
það var frítt að drekka þar og helvíti gaman bara, ég varð fljótt
soldið fullur en en svo líka rann af mér á 0.2sek ég sver það...var
orðinn svo til edrú þegar ég kom í kef og drakk ekkert þar og varð
því ennþá edrúari (nýtt orð) þegar ég kom heim, Takk fyrir farið
ástrós, ert klárlega að stimpla þig inn sem besta frænka mín 
Næst á dagskrá er svo bara Þorláksmessu tónleikar Bubba Morthens
á NASA, ég á 3 miða, ég + 2 hver er game?
í bili
Fannson